Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, hefur tekið sæti í stjórn WOW air. Liv hefur víðtæka reynslu úr íslensku viðskiptalífi. Hún er framkvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins Nova og hefur gegnt því starfi undanfarin 5 ár.

Liv var áður framkvæmdastjóri farsímafyrirtækisins Sko en þar áður gegndi hún starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðassviðs hjá Og Vodafone og þar áður hjá Tali.

,,Það er gaman að fá tækifæri til að taka þátt í uppbygginu nýs félags og nú í flugrekstri. WOW air ætlar sér stóra hluti og ég hlakka til að vinna með þeim að því verkefni," er haft eftir Liv í tilkynningu.

WOW air mun fljúga til 13 áfangastaða í Evrópu frá og með byrjun júní. Stjórnarformaður WOW air er Skúli Mogensen.