Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag, þriðja daginn í röð, en að sögn Bloomberg fréttaveitunnar voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins.

MSCI Kyrrahafsvísitalan lækkaði um 0,8% og hefur nú lækkað um 4,1% í þessari viku.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,7%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,8% en í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 6,2% en fjárfestar þar í landi gera ráð fyrir að stjórnvöld komi til með að spýta meira fjármagn inn í hagkerfið í þeirri von að halda því gangandi.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 1,7% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 0,7%.