Flestir hlutabráfmarkaðir lækkuðu í Evrópu í dag en það voru helst bankar og bílaframleiðendur sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar.

FTSEurofirst 300 vísitalan lækkaði um 0,5% en hafði þó fyrr um daginn lækkað um 0,8%.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,2% og í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 1,1%. Í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan hins vegar um 1,1%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,4% en í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 0,5%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 3,5% og í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 2,1%.

Í Osló hækkaði OBX vísitalan hins vegar um 1%.