Hlutabréf lækkuðu víðast hvar í Asíu í dag. DJ Asia-Pacific vísitalan lækkaði um 1,2%. MarketWatch skýrir lækkunina með viðvarandi áhyggjum af heimsbúskapnum. Hlutabréf í Evrópu hafa lækkað í fyrstu viðskiptum og nemur lækkunin rúmu 1% á Euronext 100 vísitölunni.

Lækkunin í Japan var 2,4% þrátt fyrir að nýjar hagtölur í Japan bendi til að samdráttur landsframleiðslunnar á fjórða fjórðungi í fyrra hafi verið heldur minni en áður var talið, eða 3,2% í stað 3,3%. Tölurnar staðfesti hins vegar mikið hrap útflutnings.