Hlutabréf lækkuðu undir lok dags í Evrópu en höfðu hækkað við opnun markaða í morgun. Hlutabréfavísitölur á Norðurlöndunum hækkuðu þó í dag.

FTSEurofirst 300 vísitalan hafði við lok markaða lækkað um 0,5% en um hádegi hafði hún hækkað um 0,6%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 1%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 1,5% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 0,2%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 1% en í Sviss stóð SMI vísitalan í stað.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 0,3%, í Osló hækkað OBX vísitalan um 0,8% og í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 0,6%.