Frá og með deginum í dag verður hið gamla og rótgróna Loftorku nafn tekið aftur upp í Borgarnesi.  LOB ehf sem verið hefur formlegt heiti félagsins síðan í sumar, verður nú lagt til hliðar og upp tekið nafnið Loftorka í Borgarnesi ehf.

,,Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur sem komum að hinu endurreista félagi.  Loftorku nafnið er þekkt og nýtur virðingar í byggingageiranum.  Hér hafa menn verið með rörasteypu síðan 1969 og framleitt húseiningar síðan 1981 og alltaf undir nafni Loftorku."  segir Óli Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri í frétt á heimasíðu félagsins.