Loðnuvertíðin er hafin en þrjú skip hafa leitað loðnu undanfarna daga norðan við land. Tvö skipa HB Granda, Ingunn AK og Faxi RE, fóru til veiða í síðustu viku en auk þeirra hefur Börkur NK verið að veiðum. Í gærmorgun var Ingunn komin með um 600 tonna afla en áhöfnin á Faxa varð fyrir því óláni að nótin rifnaði illa.

Að sögn Guðlaugs Jónssonar, skipstjóra á Ingunni, eru skipin stödd í gær á austanverðum Kolbeinseyjarhryggnum, um 70 sjómílur norðvestur af Melrakkasléttu. Áður en þangað var haldið voru skipin í loðnuleit norður af Vestfjörðum. Vart varð við þokkalegar torfur norður af Kögri en áður en hægt var að kasta á þær lagðist rekís yfir svæðið.

,,Við héldum því austur með landinu og höfum víða orðið varir við loðnu. Vandinn er sá að loðnan stendur djúpt og gefur sig ekki til fyrr en það er orðið dimmt. Hér á Kolbeinseyjarsvæðinu eru aðstæður mjög erfiðar vegna mikilla strauma og það er erfitt að hitta á loðnutorfurnar,“ segir Guðlaugur í viðtali á heimasíðu HB Granda . Að hans sögn er loðnan austan við Kolbeinsey stór og falleg en loðnan þar fyrir vestan er af blandaðri stærð. Ekki er leyfilegt að veiða í flottroll vestan við Langanes og því eru skipin útbúin með djúpnótum.