Lúðvík Geirsson
Lúðvík Geirsson
© BIG (VB MYND/BIG)
Lúðvík Geirsson, fyrrum bæjarstjóri Hafnafjarðarbæjar, er 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og tekur því sæti Þórunnar Sveinbjarnardóttur á Alþingi, ef hann kýs svo. Þórunn tilkynnti í dag um ákvörðun sína að segja af sér þingmennsku.

Lúðvík segir í samtali við Viðskiptablaðið að ákvörðun hans um að taka sæti liggi ekki fyrir. Hann hafi fengið fréttir um afögn Þórunnar skömmu fyrir hádegi í dag. Ákvörðun um hvort hann setjist á þing muni liggja fyrir um helgina.