Þýska flugfélagið Lufthansa mun hefja beint flug frá Munchen í Þýskalandi til Keflavíkur sumarið 2001, en hingað til hefur það aðeins flogið til Íslands frá Frankfurt. Þetta kemur fram á vefnum Allt um flug .

Flogið verður einu sinni í viku frá 23. maí til 6. september 2015. Frá Munchen verður farið í loftið kl. 21:45 að staðartíma á laugardagskvöldum og lent í Keflavík kl. 23:55. Frá Keflavík er svo brottför kl. 01:10 á sunnudegi og lent kl. 6:55 að morgni.

Lufthansa mun fljúga milli Keflavíkur og Munchen í samkeppni við Air Berlin og Icelandair sem bæði fljúga sömu leið yfir sumartímann.