Baugi Group hf. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dóms Hæstaréttar: "Í ljósi dóms Hæstaréttar í dag, þar sem máli ákæruvaldsins gegn stjórnendum Baugs Group hf. og fleirum var að mestu vísað frá dómi, vill stjórn Baugs Group hf. skora á yfirvöld að hætta frekari áreitni í garð fyrirtækisins. Það á heita fórnarlamb hinna meintu afbrota en hefur fremur orðið fórnarlamb lögreglurannsóknarinnar sem hefur staðið í þrjú ár og valdið fyrirtækinu ómældu tjóni. Nú er mál að linni."

Undir þetta ritar Hreinn Loftsson stjórnarformaður Baugs Group.