Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts, segir að hótelið eigi marga fastagesti sem koma á hverju ári. Foreldrar Geirlaugar, þau Þorvaldur Guðmundsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir, opnuðu hótelið árið 1965. Geirlaug og systkini hennar erfðu hótelið að foreldrunum látnum en Geirlaug hefur átt það ein í tíu ár.
„Hérna í gamla daga komu margir laxveiðimenn. Þá var Síld og fiskur hér við hliðina. Þá fengu þeir að geyma laxinn í frysti hjá okkur og afi minn reykti laxinn,“ segir Geirlaug. Aðspurð segir hún að laxveiðimenn komi enn þann dag í dag. „Jájá, þeir gera það,“ segir hún. Geirlaug segir að þeim sem komi á Hótel Holt finnist staðsetning hótelsins vera frábær. „Enda erum við hérna í 101 í íbúðahverfi, í göngufæri frá miðbænum og í burtu frá skarkalanum og hávaðanum. Svo finnst þeim þjónustan góð og við leggjum mikla áherslu á að hafa hana góða. Og svo finnst þeim herbergin vera hrein. Það höfum við alltaf lagt mikla áherslu á,“ segir hún.
Geirlaug segist ætla að reka Hótel Holt svo lengi sem hún lifi en hún muni ekki færa út kvíarnar. „Ég hef nóg með þetta. Það er um að gera að þetta sé vel rekið og skili einhverjum hagnaði eftir að ég er búin að öllum þessum framkvæmdum,“ segir Geirlaug. Hún segist búast við því að hótelið verði eins eftir tíu ár og það er í dag. „Fólki líður hérna eins og heima hjá sér. Það er góður andi hérna og við erum öll að vinna að sama marki,“ segir hún.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast tölublaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð .