Margrét Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna Advania. Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2018, fyrst sem forstöðumaður á rekstrarlausnasviði og nú síðast sem forstöðumaður mannauðslausna. Advania greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að Margrét hafi víðtæka stjórnunarreynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hún var áður vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá Já, sviðsstjóri hjá Wise og rekstrarstjóri tækniþjónustu Íslandsbanka.

Margrét stýrir nú fjölmennu sviði og því tilheyra veflausnir, skólalausnir, rafræn viðskipti, mannauðslausnir, sala og ráðgjöf. Í einingum sviðsins er fengist við hugbúnaðarþróun, þjónustu, ráðgjöf og innleiðingar ásamt sölu á vörum Advania og lausnum samstarfsaðila.

Margrét tekur við af Önnu Björk Bjarnadóttur sem hverfur til annarra starfa. Í tilkynningunni þakkar Advania Önnu Björk kærlega fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

„Það er virkilega gaman að vera treyst fyrir þessu verkefni. Ég veit ekkert skemmtilegra en að skapa virði fyrir viðskiptavini með notkun tækninnar. Ég hlakka mikið til að vinna áfram með því frábæra fólki sem starfar hjá ráðgjöf og sérlausnum Advania, og nú í nýju hlutverki. Okkar markmið er eftir sem áður að hjálpa okkar viðskiptavinum við að ná sem bestum árangri í sínum verkefnum," segir Margrét.

Þórður Ingi Guðmundsson tekur við sem forstöðumaður mannauðslausna Advania. Hann er með BS gráðu í eðlisfræði og vélaverkfræði, og MS gráðu í orkuverkfræði. Hann hefur verið hjá Advania í ár og þar á undan vann hann í sex ár við þróun greiðslulausna hjá Valitor.

Í kjölfar þessara breytinga skipa framkvæmdastjórn Advania þau: Ægir Már Þórisson forstjóri, Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Sigrún Ámundadóttir, Einar Þórarinsson, Jón Brynjar Ólafsson og Margrét Gunnlaugsdóttir.