María Kristjánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri GH Sigurgeirsson Intellectual Property, sem er sjálfstætt dótturfélag LEX á sviði vörumerkja- og einkaleyfaréttar. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

María lauk ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og LL.M. gráðu í alþjóðaviðskiptalögfræði frá Fordham háskóla í New York 2008. María er lögmaður með leyfi til reksturs mála fyrir héraðsdómi og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2008, aðallega á sviði hugverkaréttar, samkeppnisréttar og persónuverndarmála.

María hefur samhliða störfum sínum hjá LEX sinnt störfum fyrir GH Sigurgeirsson frá haustinu 2018 þegar LEX tók yfir starfsemi fyrirtækisins, þar af sem aðstoðarframkvæmdastjóri frá mars 2019.

María tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Huldu Árnadóttur, sem tók við embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness fyrr í mánuðinum.