Verðbréf
Verðbréf
Hlutabréfamarkaðir héldu áfram að lækka í gær þrátt fyrir bráðabirgðasamkomulag demókrata og repúblikana um skuldamál bandaríska ríkisins. Rétt fyrir lokun markaða snérist þó þróunin við og þeir lokuðu grænir í Bandaríkjunum. vísitalan S&P 500 hækkaði um 0,5% og Dow Jones vísitalan um 0,3%.

Þá lækkaði breska FTSE 100 vísitalan um 2,34%, þýska DAX lækkaði um 2,3% og franska CAC lækkaði um 1,93%. Lækkanirnar í gær hafa þó gengið til baka að hluta til í Þýskalandi og Frakklandi í morgun. Dax hefur hækkað um 1% og CAC um 0,3% (kl. 9:22) samkvæmt heimildum IFS greiningar.