Úrvalsvísitalan [ OMX ISK ] hefur lækkað um 0,25% í dag og er 6,407 stig. OMXN40 hefur hækkað um tæplega 1%.

Lítil velta hefur verið á hlutabréfamarkaði í dag.

Mest hækkun hefur verið hjá Spron [ SPRON ] 1,2%, Føroya Banka [ FO-BANK ] 0,5%, Marel [ MARL ] 0,5%, Alfesca [ A ] 0,4% og Teymi [ TEYMI ] 0,3%.

Mest lækkun er hjá Flögu [ FLAGA ] 6,5%, Fl Group [ FL ] 1,6%, Straumi Burðarás [ STRB ] 1,3%, Atorku [ ATOR ] 1% og Eimskip [ HFEIM ]  tæpt 1%.