Enn er óleyst úr ágreiningi margra fyrirtækja við lánastofnanir vegna gengislána. Þetta kemur fram í vef Félags atvinnurekenda (FA) en félagið lét Gallup kanna fyrir sig hver staðan væri.

Könnunin náði til 455 fyrirtækja. Af þeim eru rúm 27% með lán í erlendri mynt eða höfðu verið með slíkt lán undanfarin sjö ár. Af stærri fyrirtækjunum eða þeim sem veltu meira en milljarði króna, voru 57% með gengislán eða höfðu verið með slíkt lán.

„Af fyrirtækjum sem höfðu tekið lán í erlendri mynt hafði rétt um helmingur, eða 48,6%, átt í ágreiningi við fjármálastofnun vegna lánsins," segir á vef FA. „Er þau fyrirtæki voru spurð hvort leyst hefði verið úr ágreiningnum, svöruðu rúmlega 40% að hann hefði verið leystur að fullu, um 35% að úr honum hefði verið leyst að hluta og rúmlega 23% að ágreiningurinn væri óleystur."
Þeir sem höfðu fengið leyst úr ágreiningi sínum við banka að öllu leyti eða að hluta til voru einnig spurðir hversu ánægðir þeir væru með úrlausnina. Sögðust rúmlega 28% vera óánægðir, 38% ánægðir og 33% hvorki né.

Nokkrir dómar hafa fallið í Hæstarétti þar sem rétturinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki eigi ekki að njóta svokallaðrar fullnaðarkvittanareglu og verði sjálf að bera viðbótarkröfu bankans vegna gengislána þar sem ekki hafi verið aðstöðumunur á fyrirtækinu og bankanum.

Af því tilefni voru fyrirtæki sem átt höfðu í ágreiningi við fjármálastofnanir vegna gengislána spurð: „Hefur fjármálastofnunin haldið því fram að ekki hafi verið aðstöðumunur varðandi fjármálaþekkingu milli fyrirtækisins og fjármálastofnunar þegar lánið var tekið eða hefur fjármálastofnunin ekki haldið því fram?“ Tæplega 42% fyrirtækjanna svöruðu því til að slíku hefði verið haldið fram af hálfu fjármálastofnunar.

Á vefsíðu FA er haft eftir Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, að niðurstöður könnunarinnar komi ekki á óvart og staðfesti það sem Félag atvinnurekenda hafi leitast við að benda á fyrr á árinu; að átta árum eftir hrun og að gengnum hundruðum dóma í gengislánamálum séu allt of mörg lán enn í ágreiningi. Í sumum tilvikum sé enn beinlínis deilt um lögmæti lánanna, í öðrum um hvort fyrirtækjunum beri að njóta svokallaðrar fullnaðarkvittanareglu.

„Óleystur ágreiningur vegna gengislána er meinsemd í íslensku viðskiptalífi sem stendur í vegi fyrir því að mörg fyrirtæki nái að blómstra, vaxa og fjárfesta," segir Ólafur. „Allt þetta ferli hefur tekið allt of mikinn tíma og orku frá allt of mörgum fyrirtækjum og dregið úr þeim kraft til vaxtar og fjárfestinga.“