Nú hafa um eitt þúsund manns erlendis keypt sig inn á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves, sem Icelandair stendur að með samstarfsaðilum í sjötta sinn dagana 21. til 24. október. Þetta er mun meiri áhugi en nokkru sinni fyrr og að mati Icelandair er sérstaklega ánægjulegt að hátíðin hefur aðdráttarafl á flestum mörkuðum félagsins í Evrópu og Bandaríkjunum.

Tilgangur Icelandair með hátíðinni er að vekja athygli á landi og þjóð og
auk almennra ferðamanna kemur hingað árlega mikill fjöldi fjölmiðlamanna og sérfræðinga úr tónlistarheiminum til að sjá og heyra það sem boðið er uppá á hátíðinni. Dagskrá hátíðarinnar er að vanda spennandi og einkennist af skemmtilegri blöndu heimsfrægra hljómsveita, eins og Keane, og mörgu því fremsta sem íslenskt tónlistarfólk hefur upp á að bjóða.

Sala á aðgangskortum á hátíðina hefst hér á Íslandi á
http://www.farfuglinn.is klukkan 10, föstudaginn 10. september og er
takmarkaður fjöldi aðgangskorta til sölu. Sala hefst í verslunum Skífunnar
þann 17. september. Verð á aðgangskorti er kr. 5000.