Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að jafnaði 190.400 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 1% frá sama tíma ári áður eða um 1.900 manns. Jafngildir þetta 82,4% atvinnuþátttöku. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands .

Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 40.800 og er það fjölgun um 1.500 manns frá fyrra ári eða um 3,8%. Atvinnuþátttaka kvenna var 79,4% og karla 85,3%. Á þriðja ársfjórðungi 2013 voru alls 188.500 á vinnumarkaði eða 82,7% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 39.300. Atvinnuþátttaka kvenna var þá 79,8% og karla 85,7%.

Langtímaatvinnuleysi dregst saman

Á þriðja ársfjórðungi 2014 voru að meðaltali 7.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 4,5% hjá konum og 3,5% hjá körlum. Samanburður þriðja ársfjórðungs 2014 við sama ársfjórðung 2013 sýnir að atvinnulausum fækkaði um 600 og hlutfallið lækkaði um 0,4 prósentustig.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Þegar litið er til síðustu 12 mánaða hefur dregið nokkuð úr langtímaatvinnuleysi hvað fjölda varðar. Á þriðja ársfjórðungi 2014 höfðu um 900 manns verið langtímaatvinnulausir eða 0,5% vinnuaflsins samanborið við 1.900 eða 1% vinnuaflsins á þriðja ársfjórðungi 2013. Langtímaatvinnuleysi hefur ekki mælst jafn lágt síðan á þriðja ársfjórðungi 2009.