Verðbréfafyrirtækið Merrion Capital, sem er í eigu Landsbanka Íslands, mun opna nýja skrifstofu í írsku borginni Cork, segir í frétt Irish Independent.

Þar segir að fyrirtækið muni bjóða upp á eignastýringu og ráðgjöf. Fimm starfsemenn munu vinna á skrifstofunni, sem verður stýrt af Rose McHugh. Um 75 manns vinna hjá fyrirtækinu í Dublin.