Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst nokkuð milli vikna í vikunni eða um 32% og nam tæpum 1,7 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Þá hefur veltan á einni viku ekki verið meiri frá því í lok nóvember s.l. en síðustu vikur hefur veltan þó verið að hreyfast upp á við eftir að hafa dregist nokkuð saman í desember og fram eftir janúar.

Fjögurra vikna meðalvelta er nú rúmir 1,3 milljarðar króna og hefur ekki verið hærri frá því um miðjan nóvember. Í lok desember fór fjögurra vikna meðalveltan undir milljarða og það var ekki fyrr en í lok febrúar sem veltan fór aftur yfir milljarð.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 43% milli ára sem er nokkuð minna en verið hefur síðasta árið.. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Þess má geta að það var um þetta leyti í fyrra sem fasteignasala fór að dragast verulega saman þannig að mismunurinn á milli ára verður ekki ýkja mikill næstu vikur og mánuði með sama áframhaldi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 41 í vikunni en 33 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 52 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 33 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Eins og áður sagði er meðalupphæð á hvern samning nokkuð há, líkt og í síðustu viku, eða 41,3 milljónir króna og hækkar um rúmar 2 milljónir milli vikna. Það er nokkuð yfir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur einnig verið tæpar 32,5 milljónir króna frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 40% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.