Gengi hlutabréfa Marel lækkaði um 1,25% í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði um 0,69% á sama tíma.

Öðru máli gegnir um hlutabréf fasteignafélagsins Regins en gengi bréfanna hækkaði um 2,13% í 110 milljóna króna viðskiptum eftir að félagið skilaði uppgjöri fyrr í dag. Gengi bréfanna endaði í 13,43 krónum á hlut og hefur það aldrei verið hærra. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Eimskips og Haga um 0,19%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,36% og endaði hún í 1.215,38 stigum.