Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 23,5% í júlí. Þeir voru rúmlega 183 þúsund í júlí í ár, en 148 þúsund í júlí í fyrra. Þetta eru fleiri farþegar en félagið hefur nokkru sinni flutt áður í einum mánuði. Áður hafði félagið flutt flesta farþega í einum mánuði í júlí 2001, áður en til þess samdráttar kom sem einkenndi alþjóðaflug í kjölfar 11. september 2001. Frá áramótum eru farþegar Icelandair 20,3% fleiri en á fyrstu sjö mánuðum síðasta árs.

Farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 13,9% í júlí og
hefur fjölgað um 15,3% á fyrstu sjö mánuðum ársins ef miðað er við sama
tímabil í fyrra.

Þá fluttu Flugleiðir-Frakt 34,8% fleiri tonn í júlí en í júlí 2003 og hafa
flutt 30,8% fleiri tonn á fyrstu sjö mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í júlí voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun,
frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við
brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 65,6% fleiri en í sama mánuði á
síðasta ári. Á fyrstu sjö mánuðum ársins eru fartímar hjá
Loftleiðum-Icelandic tæplega tvöfalt fleiri en í fyrra.