Að meðaltali fóru 8.019 bílar í gegnum Hvalfjarðargöngin á sólarhring í júlímánuði og er það met frá því göngin voru opnuð fyrir 11 árum.

Umferðin var því 4,1% meiri í júlí núna en í sama mánuði fyrra. Þetta er nærri tvöfalt meiri umferð en var í janúar síðastliðnum en þá fóru að jafnaði 4.060 bílar um göngin á dag.

Þetta kemur fram á vef Skessuhorns í dag.