Miði.is hefur verið selt til 365 miðla ehf. frá Straumi fjárfestingabanka hf. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en Ari Edwald forstjóri 365 miðla vildi ekki gefa upp kaupverðið á félaginu. Hann sagði þó að ekki væri um háar upphæðir að ræða.

Samkvæmt frétt blaðsins er ekki von á breytingum á starfseminni að sögn Ara en kaupin eiga að gera 365 miðlum sem auglýsingasala kleift að auka þjónustu sína og breikka vöruframboð.