Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst verulega á milli vikna í vikunni, en veltan í vikunni áður var lítillega undir meðaltali.

Þannig nam veltan í vikunni 2.640 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.465 milljónir króna veltu í síðustu viku og jókst því um 80% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst við þetta aukningu og er nú nær meðaltali en í síðustu viku. Þannig nam fjögurra vikna meðalvelta í lok vikunnar 1.849 milljónum króna og hefur þannig hækkað um 210 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur lækkað um 26% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta aukist um 108% á milli ára. Á sama tíma í fyrra voru þó miklar og óvenjulegar sviptingar á markaði þegar vikuveltan fór yfir 5 milljarða króna.

Tólf vikna meðalvelta jókst um 50milljónir króna í vikunni og nemur nú 1.967 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.604 milljónir króna á viku og hefur aukist um 27% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 81 kaupsamningi þinglýst í vikunni, samanborið við 62 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 56 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði einnig töluvert í vikunni og 32,6 milljónum króna, samanborið við 23,6 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,3 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er 27,6 milljónir króna.