Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 25,4 milljörðum króna og er það annar veltumesti dagur ársins.

Í fyrri frétt Viðskiptablaðsins kom fram að velta á markaði hafi numið tæpum 29 milljörðum króna. Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll er rétt að velta dagsins nam rúmum 25,4 milljörðum króna.

Veltan í dag er því sú önnur mesta það sem af er ári. Mest velta var þann 12. mars síðastliðinn en þá var velta rétt rúmir 26 milljarðar samkvæmt Nasdaq OMX Iceland.