Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 2.19% í dag og endaði í 1,818 stigum. Markaðurinn hefur hækkað um 38.73% frá áramótum.

Mest hækkaði gengi bréfa Icelandair um 3.63%. Mikil velta var með bréf Icelandair, eða um einn og hálfur milljarður króna. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel um 2.29% með veltu upp á 616 milljónir króna, og bréfa Eimskipa um 3.34% - þó í veltu upp á 138 milljónir króna.

Gengi bréfa HB Granda lækkaði mest eða um 0.47%, með veltu upp á 104 milljónir. Gengi bréfa Regins lækkaði um 0.78%. Einnig lækkaði gengi bréfa Nýherja um 2.28%, en aðeins í 130 þúsund króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 3,2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,23 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,7% í dag í 3,5 ma. viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 2 ma. viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 1,1 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 0,9 ma. viðskiptum.