Vörukarfa ASÍ hélt áfram að hækka mikið á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í lok október og nýjustu mælingarinnar sem gerð var í verslunum um miðjan janúar (44.vika ´08 og 3. vika ´09).

Á þessu tveggja og hálfs mánaða tímabili hækkaði vörukarfan um 5-13% í öllum verslunarkeðjum að Nóatúni og Samkaupum-Úrvali undanskildum þar sem karfan hækkaði um 1- 3%.

Þetta kemur fram á vef ASÍ þar sem í dag eru kynntar nýjust niðurstöður úr verlagskönnun sambandsins.

Þar kemur fram að hækkanir á mjólkurvörum, ostum, grænmeti og ávöxtum eru áberandi miklar í öllum verslunum.

Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði að þessu sinni mest á milli mælinga í Krónunni um 12,7% og í 10-11 um 11,2%. Í Bónus nam hækkunin 8,1%, í Nettó 7,8% og í Samkaupum-Strax 7,2%. Minnst hækkaði verð körfunnar í Nóatúni um 1,2% á milli mælinga.

Í lágvöruverðsverslunum hækkaði vörukarfan mest í Krónunni um 12,7%, kjötvörur í körfunni hækka mest (21,2%) ásamt sætindum (17,5%), grænmeti og ávöxtum (15%) og drykkjarvörum (14,5%).

Sjá nánar á vef ASÍ.