Milestone hefur keypt 12.736.663 hluti af Steingrími Wernerssyni á genginu 23,2, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni, og nemur kaupverðið 295,5 milljónum króna.

Milestone er í eigu Ingunnar Wernersdóttur, Karls Wernerssonar og Steingríms Wernerssonar. Framangreindar tilfærslur hafa engin áhrif á atkvæðisrétt Milestone og fjárhagslega tengdra aðila í Glitni .