Milestone ehf., sem er í eigu Karls Wernesrssoar stjórnarmanns í Íslandsbanka og fjölskyldu, hefur í dag nýtt sér rétt samkvæmt samningi við Milestone Import Export Ltd. um kaupskyldu á 350.000.000 hlutum í Íslandsbanka hf., sem tilkynnt var um með tilkynningu til Kauphallar Íslands hf. þann 1. september 2004. Jafnframt hefur Milestone ehf. framselt bréfin til Kaupþings banka hf., sem samhliða hefur selt Milestone ehf. bréfin framvirkt til 6 mánaða.

Tilfærsla þessi hefur engin áhrif á atkvæðisrétt Milestone ehf. og fjárhagslega tengdra aðila í Íslandsbanka hf. segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.