Vegvísir Landsbankans segir að framleiðandi Miller bjórs, SABMiller, hafi í dag tilkynnt áform um að kaupa alla hluti í hollenska bruggaranum Koninklijke Grolsch N.V. sem framleiðir m.a. Grolsch bjór og léttöl.

Miller býður 48,25 EUR á hlut og er tilboðið samtals rúmlega 816 m.EUR. virði. Félögin tilkynntu sameiginlega um tilboðið og er verðið 84,3% yfir lokagengi Grolsch undanfarinn mánuð.