Velta á millibankamarkaði í marsmánuði 2011 nam 3.797 milljónum króna, samkvæmt nýbirtum hagtölum Seðlabankans. Það er 2.085 milljóna króna minni velta en í febrúar 2011.

Þar af námu gjaldeyriskaup Seðlabankans 1.212 milljónum eða 31,9% af heildarveltu mánaðarins. Gengi evrunnar hækkaði um 1,4% gagnvart krónunni í mánuðinum.

Gjaldeyrismarkaður í mars .