Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv. borgarstjóri, heldur enn öruggri forystu í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þegar talin hafa verið tæplega 4.600 atkvæði. Hanna Birna er með 3.521 atkvæði í 1. sæti listans eða um 77% greiddra atkvæða.

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður, er sem fyrr í öðru sæti listans með 1.653 atkvæði í 1.-2. sæti. Illugi er með 772 atkvæði í 1. sæti eða 17% atkvæða. Hann sóttist sem kunnugt er eftir 1. sæti.

Pétur H. Blöndal, þingmaður, er í þriðja sæti með 1.893 atkvæði og Brynjar Níelsson, hrl. í fjórða sæti. Brynjari vantar þó aðeins 40 atkvæði til að komast upp fyrir Pétur, en Brynjar var í þriðja sæti þegar fyrstu tölur voru birtar í kvöld.

Guðlaugur Þór Þórðarson er í fimmta sæti listans og vantar rúmlega 330 atkvæði í sæti 1-4 til að komast upp í fjórða sæti. Þá vantar honum rúmlega 170 atkvæði í sæti 1-3 til að komast upp í þriðja sæti.

Þegar talin hafa verið 4.564 atkvæði er röð efstu frambjóðenda þessi:

  1. Hanna Birna Kristjánsdóttir – 3.521 atkvæði í 1. sæti
  2. Illugi Gunnarsson – 1.653 atkvæði í 1. - 2. sæti
  3. Pétur H. Blöndal – 1.893 atkvæði í 1. - 4. sæti
  4. Brynjar Níelsson – 2.331 atkvæði í 1. - 4. sæti
  5. Guðlaugur Þór Þórðarson – 2.242 atkvæði í 1. - 5. sæti
  6. Birgir Ármannsson – 1.974 atkvæð í 1. - 6. sæti
  7. Sigríður Á. Andersen – 2.442 atkvæði í 1. - 7. sæti
  8. Áslaug María Friðriksdóttir – 2.751 atkvæði í 1. - 8. sæti
  9. Ingibjörg Óðinsdóttir – 1.478 atkvæði
  10. Elínbjörg Magnúsdóttir – 1.419 atkvæði

Aðrir frambjóðendur hafa  hlotið færri atkvæði