Skúli Mogensen er kominn úr stjórn Kviku, en hann á 7,2% hlut í bankanum.

Hans í stað hefur móðir hans, Anna Skúladóttir, löggiltur endurskoðandi, hefur tekið sætinu í stjórn Kviku. Anna er einnig varaformaður í stjórn Títans, fjárfestingarfélags Skúla sem fer með hlut hans í Kviku. Þetta kemur fram í viðtali við Skúla sem birtist í Frjálsri verslun í dag.