Matsfyrirtækið Moody's Investor Services tilkynnti í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á sértryggðu skuldabréfi Glitnis í Aa1 úr Aaa. Lánshæfiseinkunnin er áfram til skoðunar með möguleika á frekari lækkun, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.