Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's tilkynnti í gær um hækkun á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands í Baa2 úr Baa3. Horfur verða áfram stöðugar. Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands .

Þar segir að ákvörðun Moody's byggist á þremur eftirfarandi lykilþáttum.

  1. Vandlega undirbúnar aðgerðir hafa verið kynntar til að losa fjármagnshöft sem gera ráð fyrir að draga úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðarbúsins samhliða því að standa vörð um efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika.
  2. Væntingar um bætta skuldastöðu Ríkissjóðs Íslands á næstu þremur til fjórum árum vegna öflugs hagvaxtar, frekara aðhalds í ríkisfjármálum og fyrirframgreiðslu skulda ríkissjóðs.
  3. Bætt umgjörð þjóðhags- og eindarvarúðarreglna sem miða að því að varðveita fjármálastöðugleika til framtíðar.

Moody's hefur einnig hækkað landseinkunnina fyrir erlendar skuldir til langs tíma og skamms tíma og innstæður í Baa2/P-2 úr Baa3/P-3 og landseinkunnina fyrir skuldir og innstæður í innlendri mynt í Baa1 úr Baa2.

Hægt er að lesa fréttatilkynningu Moody's í heild sinni hér .