Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs úr Aa1 í A1.

Lánshæfismatið er áfram á athugunarlista til mögulegrar lækkunar.

Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands.