Stjórn Mosaic Fashion ákvað í gær að fara fram á gjaldþrotaskipti félagsins þar sem ekki er séð fram á að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart kröfuhöfum.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að gjaldþrotabeiðnin verður send héraðsdóm Reykjavíkur á næstu dögum.

Þá tilkynnti Kauphöllin fyrir stundu að skuldabréf, útgefin af félaginu ( (MOSAIC 05 1) hafa verið færð á Athugunarlista vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningarinnar um gjaldþrotaskiptin.