Útibúi MP banka við Borgartún 26 verður lokað og öll þjónusta flutt í höfuðstöðvar bankans í Ármúla 13a.

Hjá MP banka starfar um 100 manns í bankastarfsemi. Þessi hópur mun framvegis starfa að sameiginlegu marki í Ármúlanum, þar sem öll þjónusta er á einum stað.

MP banki býður upp á þjónustu á sviði eignastýringar, verðbréfamiðlunar, fyrirtækjaráðgjafar, og gjaldeyrismiðlunar - auk sérhæfðar bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.