Alls voru 4.529 breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar árið 2014. Flestar breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagi má rekja til úrsagna úr þjóðkirkjunni, eða 2.533. Alls gengu 2.079 fleiri úr þjóðkirkjunni en í hana á árinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Hinn 1. janúar síðastliðinn voru sóknarbörn í Þjóðkirkjunni 242.743 eða 73,8% mannfjöldans. Fyrir tíu árum voru þau rúmlega 8.000 fleiri og hlutfallið 85,4% af mannfjöldanum og hefur því sóknarbörnum í Þjóðkirkjunni fækkað um 3,2% síðastliðinn áratug.

Kaþólska kirkjan er næstfjölmennasta trúfélag landsins með 11.911 félagsmenn (3,6%). Flest hinna trú- og lífsskoðunarfélaganna eru smá og einungis fríkirkjurnar þrjár ná því að vera með yfir eitt prósent mannfjöldans innan sinna raða.

Einstaklingar utan trú- og lífsskoðunarfélaga voru 18.458 hinn 1. janúar 2015, en 23.259 voru í óskráðu trú- eða lífsskoðunarfélagi eða með ótilgreinda félagsaðild.

Árið 2014 fjölgaði þeim sem skráðu sig utan trú- og lífsskoðunarfélaga um 1.225 manns. Af trúfélögum varð mest fjölgun í Kaþólsku kirkjunni, en í hana skráðu sig 469 fleiri en sögðu sig úr henni. Næstmest var fjölgunin í Siðmennt, eða um 409 manns. Í Ásatrúarfélaginu fjölgaði meðlimum um 312 manns.