Að óbreyttu munu lyfsalar missa allan hvata til þess að veita almenningi afslátt af lyfjum. Þetta segja Neytendasamtökin sem gagnrýna nýlegar breytingar á greiðsluþátttökukerfi lyfja.

Breytingin var að norrænni fyrirmynd og var henni meðal annars ætlaða að draga úr mismunun milli sjúklingahópa. Einnig að veita þeim sem þurfa að nota mikið af lyfjum hlutfallslega meiri stuðning stjórnvalda en þeim sem nota lítið af lyfjum. Með því er reynt að verja fólk fyrir háum lyfjakostnaði.

Neytendasamtökin telja mjög mikilvægt að sjúklingar njóti afslátta með beinum hætti í lyfjaverslunum og hvetja heilbrigðisráðherra til að breyta reglugerð þannig að hún verði hvati til aukinnar samkeppni á þeim fákeppnismarkaði sem þau telja að einkenni sölu lyfja hér á landi.

Lyfjagreiðslunefnd gefur út hámarksverð lyfja og einnig greiðsluþátttökuverð Sjúkratrygginga Íslands. Sumar lyfjaverslanir hafa veitt sjúklingum afslátt frá þessu hámarksverði. Neytendasamtökin telja að að með óbreyttu fyrirkomulagi muni nýjar reglur verða til þess að þessir afslættir hætti að mestu leyti þar sem Sjúkratryggingar geri kröfu um að sá afsláttur sem veittur er renni að stærstum hluta til þeirra í stað þess að hann renni til kaupenda lyfjanna eins og verið hefur. Þar með sé ekki lengur hvati fyrir lyfjaverslanir til að bjóða lyfseðilsskyld lyf, sem Sjúkratryggingar greiða niður, á lægra verði en kveðið er á um í gjaldskrá Lyfjagreiðslunefndar. Það sé því ljóst að verulega mun draga úr verðsamkeppni milli lyfjaverslana í verði á lyfseðilsskyldum lyfjum.

Neytendasamtökin segjast ekki geta fallist á þetta. „Ef lyfjaverslun vill lækka verð á slíkum lyfjum á allur afslátturinn að renna til neytenda. Neytendasamtökin telja að annað fyrirkomulag brjóti í bága við bæði lyfjalög og samkeppnislög, enda segir í markmiðum beggja þessara laga að efla beri samkeppni,“ segir í frétt á vef Neytendasamtakanna.