Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu spilaði sinn fyrsta leik frá upphafi á lokamóti heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu um síðustu helgi, laugardaginn 16. júní.
Liðið mætti Lionel Messi og félögum í argentínska landsliðinu í Moskvu. „Strákarnir okkar“ áttu frábæran leik og gerðu 1-1 jafntefli gegn stjörnum prýddu liði Argentínu.
Víða um land sameinaðist fólk til að horfa saman á leikinn og hvetja lið Íslands til dáða. Mikil stemning var á Stuðvangi Johan Rönning og margir létu rigninguna ekki stoppa sig og fjölmenntu við risaskjái víða um land.
Haraldur Guðjónsson, ljósmyndari Viðskiptablaðsins, fór um höfuðborgarsvæðið til að fanga stemninguna.
Mætingin á Ingólfstorg var gífurlega góð.
Fjölmenni var í Hljómskólagarðinum í miðbæ Reykjavíkur þrátt fyrir vætusamt veður.
Á Rútstúni í Kópavogi fylgdist fólk spennt með gangi mála.
Frá Thorsplani í Hafnarfirði.
Ríkharð Óskar Guðnason, betur þekktur sem Rikki G, íþróttalýsandi á Stöð 2 Sport, leikgreindi lið Íslands og Argentínu fyrir áhorfendur Stuðvangs Johan Rönning.
Litir Íslands voru áberandi á Stuðvangi.
Marki Íslands var vel fagnað.
Áfram Ísland!