Félag kvenna í atvinnulífinu boðaði til fundar í Hörpu þar sem umræðuefnið var fjölbreytni í atvinnulífinu. Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, sagði þar frá reynslu sinni og var í kjölfarið boðið upp á spjall og léttar veitingar.
Þá kynntu þau Kristín Jóhannsdóttir hjá Nasdaq Iceland og Björn Berg Gunnarsson hjá VÍB verkefnið Fjölbreytni á markaði.
Eins og má sjá af myndum frá viðburðinum þá var hann mjög vel sóttur og fylgdust fundargestir ákafir með.
Brynja Halldórsdóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, fylgdist grannt með
Birna Einarsdóttir jós úr viskubrunni sínum
Fundurinn var vel sóttur
Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, fékk sér sæti á aftasta bekk
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður FKA, stýrði fundinum