Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,16% í dag og stendur í 1.773,05 stigum en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu tæplega 1,4 milljörðum króna. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,02% og stendur því í 1.364,34 stigum, en viðskipti með skuldabréf námu tæplega 1,8 milljörðum króna.

Síminn hækkaði mest eða um 1,22% í 186 milljón króna viðskiptum en bréf félagsins stóðu í 4,16 krónum við lokun markaða. Næst mest hækkuðu bréf Reita eða um 0,82% í 181 milljón króna viðskiptum. Bréf félagsins standa því í 86,50 krónum.

Mest lækkuðu bréf N1 í dag eða um 2,73% í viðskiptum upp á tæpar 253 milljónir króna og var gengi þeirra 124,50 við lokun markaða. Þá lækkuðu bréf Regins um 0,80 % í 138 milljón króna viðskiptum og stóðu bréf félagsins í 24,70 krónum í lok dags.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,16% í viðskiptum upp á tæplega 1,3 milljarða. Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,02% í 1,7 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,01% í 0,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,06% í 1,1 milljarða viðskiptum.