Bill Gates hættir sem stjórnarformaður Microsoft. Þetta kemur fram á vef New York Times. Hann verður ráðgjafi fyrirtækisins og hinn 64 ára gamli John W. Thompson verður stjórnarformaður.

Satya Nadella verður næsti forstjóri Microsoft. Hann tekur við af Steve Ballmer. Nadella hefur unnið hjá fyrirtækinu um nokkurt skeið. Steve Ballmer sagði í ágúst síðastliðnum að hann myndi hætta hjá fyrirtækinu innan tólf mánaða. Síðan þá hafa verið miklar vangaveltur um það hver tæki við stöðunni.