Tæp 30% landsmanna eða 47.100 manns á aldrinum 25-64 höfðu eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, í fyrra, samkvæmt  niðurstöðum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands . Það eru 29,3% íbúa landsins á þessum aldri. Þetta er nokkur fækkun á tíu ára tímabili en árið 2003 voru 34,6% landsmanna á þessum aldri aðeins með grunnmenntun.

Þá hafa 35,8% íbúa landsins mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, 57.600 manns. Þá hafa 56.300 manns lokið háskólanámi, eða 35,0% íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað nokkuð frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,7% íbúa.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að mikill munur er á menntun íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Á höfuðborgarsvæðinu hafa 24,2% íbúa á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun en 40,9% hafa lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins hafa 37,8% íbúa aðeins lokið grunnmenntun og 24,7% lokið háskólamenntun.