Neal Ostrov hefur verið ráðinn markaðsstjóri tölvuleikjaframleiðandans Plain Vanilla en hann var áður markaðsstjóri hjá fyrirtækinu Mobli. Ostrov mun starfa á skrifstofu Plain Vanilla í New York.

Í tilkynningu frá Plain Vanilla segir að Ostrov sé mikill happafengur fyrir Plain Vanilla enda þyki hann mjög fær á sínu sviði og í fyrra verið valinn á lista tímaritsins Forbes yfir þrjátíu efnilegustu markaðsmennina undir þrítugu.

Ostrov er aðeins 25 ára en hjá Mobli hafði hann yfirumsjón með fjölda vel heppnaðra stafrænna auglýsingaherferða. Mobli er samfélagsmiðill þar sem notendur deila ljósmyndum og myndskeiðum og eru helstu keppinautar Mobli fyrirtæki eins og Instagram, Socialcam og Viddy.