Neytendastofa hefur sektað IP-fjarskipti ehf. um tvær og hálfa milljón kr. fyrir auglýsingar Tals þar sem með almennum hætti er fullyrt að Tal bjóði ódýrari þjónustu en keppinautar.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en stofnunin segir að fyrirtækið hafi ekki geta sannað fullyrðingarnar eins og lög gera ráð fyrir og þar sem Neytendastofa hafði áður lagt fyrir Tal að hætta birtingu sambærilegra auglýsinga taldi stofnunin rétt að sekta fyrirtækið.

Það var Síminn sem sendi erindi til Neytendastofu þann 2. nóvember 2009 þar sem kvartað var yfir auglýsingum Tals.

Sjá nánar á vef Neytendastofu