Japanski bifreiðaframleiðandi Nissan hefur nú skilað hagnaði í þrjá mánuði í röð en það er í fyrsta skiptið sem slíkt hefur gerst í rúmt ár.

Hagnaðurinn er rakinn til mikilla vinsælda bifreiðar sem nefnist 4X4 Qashgai.

Hagnaður Nissan jókst um 26,6% á síðasta ársfjórðungi síðasta árs.