Líklegt er að tvö fyrirtæki verði skráð á markað á næstu mánuðum, áður en fyrirtækið Hagar verður skráð í samræmi við áætlun Arion banka, sem yfirtekið hefur fyrirtækið, þar um.

Páll Harðarson, forstöðumaður rekstrarsviðs Kauphallar Íslands, staðfesti að ný fyrirtæki kæmu inn á markað á næstu misserum en vildi ekki nefna hvaða fyrirtæki það væru. „Ég geri ráð fyrir að það bætist við nokkur fyrirtæki í Kauphöllina á næstu tólf mánuðum,“ sagði Páll í samtali við Viðskiptablaðið.